Skip to content

Upplestrarkeppnin í 7. bekk

Mánudaginn 11. mars kepptu átta nemendur úr 7. bekk í upplestri. Keppt var um sæti í lokakeppni “Stóru upplestrarkeppninnar”

Það voru þau  Iðunn, Tinna Björk, Grímur , Úlfur Eysteinn, Iðunn Anna, Anton Guðni, Fanney  og Eygló Þóra sem lásu. Þessir krakkar höfðu áður verið valin sem bestu lesararnir í 7. bekk.

Hver og einn las þrisvar sinnum. Fyrst var lesið brot úr sögu, síðan rímað ljóð og að lokum órímað ljóð.

Nemendur í 6. bekk spiluðu á hljóðfæri eftir upplesturinn og Freyja Rún  í 7. bekk var kynnir.

Allir stóðu sig mjög vel en dómnefnd, sem var skipuð þeim Elínu Árnadóttur, Gunnlaugi Dan Ólafssyni og Helgu Helgadóttur, ákvað að Tinna Björk og Grímur  myndu keppa í lokakeppninni sem haldin verður í Grensáskirkju þann 20. mars. Eygló Þóra var valin til vara.

 

Við óskum lesurunum öllum til hamingju með frábæran árangur.