Stóra upplestrarkeppnin í Vogaskóla

Fimmtudaginn 4. mars kepptu sjö nemendur úr 7. bekk í upplestri. Keppt var um sæti í lokakeppni “Stóru upplestrarkeppninnar”
Það voru þau Tómas Hugi, Iðunn Þórey, Þórarinn, Rakel Rut, Alexander, Freydís Katla og Ívar Ingi sem lásu. Þessir krakkar höfðu áður verið valin sem bestu lesararnir í 7. bekk.
Hver og einn las þrisvar sinnum. Fyrst var lesið brot úr sögu, síðan rímað ljóð og að lokum órímað ljóð.
Nemendur í 6. bekk spiluðu á hljóðfæri eftir upplesturinn og Alex í 7. bekk var kynnir.
Allir stóðu sig mjög vel en dómnefnd, sem var skipuð þeim Kristjönu Skúladóttur, Viktoríu Róbertsdóttur og Jónínu Ólöfu Emilsdóttur, ákvað að Freydís Katla og Ívar Ingi myndu keppa í lokakeppninni sem haldin verður í Grensáskirkju þann 23. mars. Þórarinn var valinn til vara.
Við óskum lesurunum öllum til hamingju með frábæran árangur.