Upplestrarkeppni í Vogaskóla

Mánudaginn 14. mars kepptu sjö nemendur úr 7. bekk í upplestri. Keppt var um sæti í lokakeppni “Upplestrarkeppninnar”
Það voru þau Elísabet Yrsa, Ragna Þóra, Óðinn, Rakel Júlía, Sverrir Logi, Katla og Alexander Arnar sem lásu. Þessir krakkar höfðu áður verið valin sem bestu lesararnir í 7. bekk. Auk þess hafði Lena Líf verið valin, en hún keppti ekki vegna veikinda.
Hver og einn las þrisvar sinnum. Fyrst var lesið brot úr sögu, síðan rímað ljóð og að lokum órímað ljóð. Guðrún Saga var kynnir keppninnar.
Nemendur í 6. bekk spiluðu á hljóðfæri eftir upplesturinn og svo sýndu þau hæfni sína í joggli.
Allir stóðu sig mjög vel en dómnefnd, sem var skipuð þeim Kristjönu Skúladóttur, Viktoríu Róbertsdóttur og Tómasi Holton, ákvað að Alexander Arnar og Óðinn myndu keppa í lokakeppninni sem haldin verður í Grensáskirkju þann 30. mars. Katla var valin til vara.
Við óskum lesurunum öllum til hamingju með frábæran árangur.