Vogaskóli

Grunnskóli, 1.-10. bekkur

Við Skeiðarvog
104 Reykjavík

""

Skóladagatal

Í skóladagatali Vogaskóla eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir nemendur, foreldra og forráðamenn.

Matur í grunnskólum

Flestir grunnskólanemendur eru í mataráskrift. Skólamatur kostar það sama í öllum skólum. Ekki þarf að greiða mataráskrift fyrir fleiri en tvö börn frá sama heimili.

Um Vogaskóla

Vogaskóli er hverfisskóli í Vogahverfi og tilheyrir hverfi Laugardals- og Háaleitis. Vogaskóli er einn af eldri skólum borgarinnar, tók til starfa í desember 1958. Hann á sér því langa og merka sögu. Skólinn er í grónu hverfi nálægt náttúruperlum eins og Laugardal og Elliðaárdal.

Vogaskóli er einsetinn, heildstæður grunnskóli frá 1. bekk og upp í 10. bekk. Við skólann er formleg sérdeild fyrir einhverfa og eru sjö nemendur í henni. Nemendur við skólann eru rúmlega 300 þetta skólaár og starfsmenn um 50. Húsnæði skólans skiptist í tvennt, eldri byggingu og nýbyggingu. Í eldri byggingu eru nemendur í 7. - 10. bekk, námsráðgjafi, námsver og félagsmiðstöðin Buskinn með aðsetur. Þar er einnig list- og verkgreinakennsla. Í nýbyggingu eru nemendur í 1.-6. bekk, einhverfudeild, upplýsingaver, tónmenntastofa, heimilisfræði, skrifstofur stjórnenda, aðstaða skrifstofustjóra og hjúkrunarfræðings, mötuneyti, kaffistofa og matsalur. Á skólalóð er hús frístundaheimilisins Vogasels sem er fyrir börn í 1.-4. bekk í Vogaskóla.

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Vogaskóla er: Sveinfríður Olga Veturliðadóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​
 

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Skólahverfi Vogaskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Vogaskóla.

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.