Skip to content
23 mar'23

Vogaskóli í 1. sæti

Lokahátíð upplestrarkeppninnar – Steindór  í 1. sæti! Lokahátíð Upplestrarkeppninnar var haldin í Grensáskirkju miðvikudaginn 22. mars. Þar kepptu  fulltrúar úr skólum Laugardals, Háaleitis og Bústaða. Fulltrúar Vogaskóla  voru þeir Jón Grétar Gunnarsson og Steindór G. Einarsson  sem báðir stóðu sig frábærlega. Þeir höfðu, ásamt Steinhildi Rós, sem var varamaður, undirbúið sig vel fyrir keppnina. Óðinn…

Nánar
13 mar'23

Upplestrar keppnin

Föstudaginn  3. mars kepptu átta nemendur úr 7. bekk í upplestri. Keppt var um sæti í lokakeppni “Upplestrarkeppninnar” Það voru þau Hrafnhildur, Steinhildur, Malena, Arnar Óli, Árni Gauti, Jón Grétar, Steindór og Styrmir sem lásu. Þessir krakkar höfðu áður verið valin sem bestu lesararnir í 7. bekk. Hver og einn las þrisvar sinnum. Fyrst var lesið brot…

Nánar
17 feb'23

Næsta vika/next week

Mánudaginn 20. febrúar er bolludagur. Þann dag mega nemendur koma með bollu að heiman í nesti.  Miðvikudaginn 22. febrúar er öskudagur. Það er skertur skóladagur og hér má sjá dagskrá öskudags. Við hvetjum alla til að mæta í búningum.  Fimmtudag og föstudag er vetrarleyfi. Þá daga er skólinn lokaður. Next week will be short at…

Nánar
13 feb'23

Miðlalæsis- vika 13. – 17. febrúar

Vikan 13. – 17. febrúar er árleg fræðsluvika þar sem lögð er áhersla á vitundarvakningu um mikilvægi upplýsinga- og miðlalæsis. Miðlalæsi.is – glæný vefsíða sem mun halda utan um fræðsluefni varðandi upplýsinga- og miðlalæsi og vera með tengla á tengdar síður. Þar er að finna nánari upplýsingar um fræðsluvikuna.

Nánar
06 feb'23

Foreldra- viðtalsdagur 8. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar verða foreldraviðtöl í Vogaskóla. Nemendur mæta með foreldrum sínum í boðuð viðtöl.  Kaffihúsastemning verður í Salnum þar sem vöfflusala fer fram til styrktar nemendum í 7. bekk sem fara að Reykjum í næsta mánuði.

Nánar
06 feb'23

100 daga hátíð!

Nemendur í 1. bekk héldu upp á það í síðustu viku að 100 dagar eru búnir af skólaárinu. Það var mikil gleði og mikið gaman hjá nemendum þegar þeir töldu 100 stykki af góðgæti í pokana sína.

Nánar
10 des'22

Eldvarnarvika

Í tilefni af eldvarnarviku í nóvember heimsótti slökkviliðið nemendur í 3. bekk og fræddi þau um öryggsatriði tengd eldvörnum. Allaf mikil spenna að skoða bílana í lok fræðslunnar.

Nánar
18 nóv'22

Dagur íslenskrar tungu

Upplestrarkeppnin í 4. og 7. bekk var sett á degi íslenskrar tungu. Nemendur í 7. bekk voru með frábært atriði tengt Jónasi Hallgrímssyni sem nemendur í 4. og 7. bekk horfðu á.

Nánar
18 nóv'22

Baráttudagur gegn einelti

Allir árgangar Vogaskóla unnu verkefni sem tengt var báráttudegi gegn einelti.  Nemendur teiknuðu útlínur handa sinna og skrifuðu á fingurna hvernig mætti stoppa einelti. Verkefnið var hengt upp í skólanum.

Nánar